Fjórir nýir félagar í Borgum

laugardagur, 16. desember 2023

Á jólafundi Borga 14. desember sl. voru teknir inn fjórir nýjir félagar, þ.e. Sævar Skaptason, Anna V. Einarsdóttir, Dóra S. Gunnarsdóttir og Árni Bragason. Árni var áður félagi í Rótarýklúbbi Rangæinga en flytur í Borgir. Nýir félagar eru boðnir velkomnir og klúbburinn væntir mikils af þeim í framtíðinni.

Frá hægri: Árni Bragason, Dóra S. Gunnarsdóttir, Anna V. Einarsdóttir, Sævar Skaptason og Emma Eyþórsdóttir forseti.