Við fögnum nýjum félögum

fimmtudagur, 16. febrúar 2023

Á fundi þann 16. febrúar voru teknir tveir nýir félagar í Rótarýklúbbinn Borgir.

Þetta eru þeir Friðrik Baldursson skrúðgarðyrkjumeistari og garðyrkjustjóri Kópavogs og Kristján Haukur Flosason rafmagnsverkfræðingur sem starfar hjá Iðnaðartækni ehf.

Við fögnum nýju félögunum og vitum að þeir bera með sér ferska vinda inn í klúbbstarfið og að klúbburinn verður enn öflugri.

Það eru nú 36 karlar og 37 konur í klúbbnum og enn er því sá óvenjulegi kynjahalli að konur eru fleiri en karlar. Við í Borgum teljum víst að aðrir Rótarýklúbbar öfundi okkur af þessum kynjahalla.

Á mynd frá vinstri  : Jón forseti, Friðrik Baldursson og Kristján Haukur Flosason