Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi hjá Skógræktinni, Erindi hans fjallar um gildi útikennslu fyrir grunnskólanemendur.
Ólafur hefur verið með skógræktardellu alla æfi. Gerði kennsluefnið "Lesið í skóginn" og verið verkefnisstjóri hjá borginni um skógarmál. Um 30 grunnskólar fengu aðgang að skógarsvæðum í nágrenni borgarinnar svokalla grendarskóga. Grenndarskógur er ungur eða eldri skógur í göngufæri frá skólanum og er notaður í skipulegu útinámi sem tengist skólanámskrá og aðalnámskrá grunnskóla. Honum er ætlað að auka fjölbreytni í skólastarfi og styðja við markmið um einstaklingsmiðað nám. Skógurinn getur líka verið vettvangur ýmiss konar viðburða sem tengjast skólastarfinu. Með þessu átti að byggja upp skógareynsla í skólunum og skógarmenningu. Gerðir voru samningur um grenndarskóg gefur skóla formlegri aðgang að tilteknu skógarsvæði.