Fundurinn var
haldinn 23. júní á veitingastaðnum Nauthól en um 80 félagar og gestir mættu. Á
fundinum afhenti Stefán Baldursson, fyrir hönd Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi,
Bryndísi Guðjónsdóttur sópran viðurkenningarskjal og blóm í tilefni af
styrkveitingu úr sjóðnum frá árinu 2021. Afhending viðurkenningarinar hafði
dregist vegna heimsfaraldrar af völdum Covid 19.
Að loknum rótarýfundi
tók við skemmtidagskrá en Málfríður Klara Kristiansen var veislustjóri og
Sveinbjörn Sveinbjörnsson flutti hátíðarræðu. Tónlistaratriði var í höndum Guðjóns
Karlssonar, Hallgríms Ólafssonar og Jóns Ólafssonar.